Ray Tintori, kærasti leikkonunnar og grínistans Heidi Gardner, sem er þekkt fyrir þátttöku sína í Saturday Night Live, er látinn, 43 ára að aldri. Þetta hefur TMZ eftir heimildum. Talsmaður embættis réttarmeinafræðings New York-borgar staðfesti við E! News að embættið rannsaki andlát Tintori. Í yfirlýsingu þann 16. nóvember kom fram að dánarorsök og aðdragandi andlátsins væru enn ókunn og biðu...