Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun því von er á hvassviðri eða stormi á landinu sunnan- og vestanverðu í kvöld og í nótt. Vindhviður gætu farið yfir 35 m/s við fjöll, einkum nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi og við Esju. Varasamt veður verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.Viðvörunin gildir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og miðhálendinu. Fyrstu viðvaranir taka gildi klukkan átta í kvöld og gilda fram yfir hádegi á morgun. Nánar á vef Veðurstofunnar.Annars suðaustan og austan 10-18 m/s sunnan- og vestanlands í dag og sums staðar dálítil rigning eða slydda. Hiti 1 til 5 stig. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi með þurru veðri og frosti, að því er segir í textaspá Veðurstofu Íslands.Suðaustan 15-23 hvassviðri eða stormur í kvöld á Suður- og Vesturlan