Söngur skipar stóran sess í lífi íbúa Eystrasaltsríkjanna þriggja: Eistlands, Lettlands og Litáens. Þjóðlögin skipta hundruðum þúsunda í Lettlandi og þar er hægt að finna lag um nær öll hugsanleg verk daglegs lífs og nær allar tilfinningar mannlegrar tilveru.Það var ýmislegt sem varð til þess á tíunda áratug síðustu aldar að ríkjunum tókst að komast undan oki Sovétríkjanna og að sumra mati var söngurinn eitt af því, enda hefur sönghefðin lengi verið birtingarmynd friðsamlegrar andspyrnu.„Þjóðlögin okkar hjálpuðu því að við höfum verið í um 800 ár undir öðrum löndum,“ segir Díana Sus í viðtali í Heimskviðum. Hún er söngkona með meiru, frá Lettlandi og hefur síðustu ár búið hér á landi.Díana bendir á að Lettland hafi verið undir Þýskalandi og Rússlandi og að þjóðlögin hafi hjálpað Lettum að