Í umfjöllun New York Times nýverið kom fram að gervigreindin valdi bandarískum háskólum sem bjóða upp á fjarnám miklum áskorunum. Meðal annars séu dæmi um að stúdentar geti notað gervigreindarerindreka til að sjá um námið frá a til ö, skila verkefnum, taka próf og jafnvel spjalla við aðra nemendur í gegnum samskiptaforrit.Hver er þá staðan hér á landi? Það mál er réttast að ræða við skólafólk í Háskólanum á Akureyri og á Bifröst en ýmist meirihluti eða allir nemendur þessara skóla eru í fjarnámi. UM 77% NEMENDA VIÐ HA Í FJARNÁMI Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar hjá HA, segir að unnið hafi verið að viðbrögðum í um tvö ár og fylgst með því sem hefur verið að gerast erlendis. Markmiðið sé ekki að banna gervigreindina heldur að koma í veg fyrir að nemendur nýti hana með r