Deilur um dansara: Skoða hvort banna eigi fólk frá íþróttastarfi á Íslandi

,,Við erum alltaf að huga að velferð og öryggi iðkenda. Málið er hjá vinnuhópnum og þar geri ég ráð fyrir að meðal annars verði um þennan dóm. Meginmarkmið vinnuhópsins er í raun og veru verndun og velferð iðkenda sem er sífellt að verða mikilvægari hluti af okkar starfi," segir Helga Þórðardóttir, lögfræðingur Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ), þegar hún er spurð að því hvaða áhrif deilur um umdeildan dansara á miðjum aldri hafi haft á afstöðu sambandsins til núgildandi reglna sem gilda um félagafrelsi í íþróttafélögum.Maðurinn hefur verið kærður fyrir meinta ósiðsamlega hegðun og meinta kynferðislega áreitni gegn unglingsstúlkum sem hann hefur þjálfað. Lögregla vísaði kæru á hendur manninum frá árið 2021. Þetta hefur komið fram í máli Köru Arngrímsdóttur, forsvarsmanns Dansfélags Reykjavíkur
Deilur um dansara: Skoða hvort banna eigi fólk frá íþróttastarfi á Íslandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar