30 ára karlmaður var fundinn sekur í gær fyrir að kveikja gróðurelda í Los Angeles í Bandaríkjunum á nýársdag 2025. Eldurinn breiddist hratt út og varð einn mannskæðasti gróðureldurinn í sögu Kaliforníu-ríkis. Tólf manns fórust í eldunum í Pacific Palisades-hverfinu og enn fleiri fórust í öðrum gróðureldum í borginni sem loguðu á sama tíma.Maðurinn, Jonathan Rinderknecht, er fyrrum Uber-bílstjóri. Þetta er í annað sinn sem réttað var yfir honum fyrir alríkisdómi vegna eldanna en í fyrri réttarhöldunum komst kviðdómur ekki að samkomulagi og réttarhöldin voru ógild. Í seinni réttarhöldunum komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að hann væri sekur um íkveikju og eyðileggingu eigna. Hann er sagður hafa notað kveikjara til að kveikja eld í hæðunum ofan við Pacific Palisades-hverfið í Los Angeles