Jarðskjálfti af stærðinni 6,7 varð í Perú skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín í Andesfjöllum í Mið-Perú, um 30 kílómetra norðvestur af borginni Junín, á um 129 kílómetra dýpi.Skjálftinn fannst vel í höfuðborginni Lima og margir íbúar yfirgáfu hús sín þegar þeir fundu skjálftann. Jarðeðlisfræðistofnun Perú segir að ekki hafi borist fregnir af manntjóni eða eyðileggingu í skjálftanum.Jarðskjálftar eru tíðir í Perú, en landið er staðsett á svonefndum eldhring Kyrrahafsins, sem nær frá Japan, um Suðaustur-Asíu og þvert yfir Kyrrahafssvæðið. Jarðskjálftafræðingar segja að í Perú verði að minnsta kosti 400 jarðskjálftar á ári, en um þriðjungur þeirra er svo lítill að fæstir verða varir við þá.