Dregið verður úr þjónustu Strætó á nokkrum leiðum þann 1. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins.Meðal breytinga sem taka gildi 1. desember er að síðustu ferðir á kvöldin verða felldar niður á um helmingi leiða, bæði á virkum dögum og um helgar.Tímabil 10 mínútna tíðni verður stytt á leiðum 3, 5 og 12 og tíðni verður dregin saman úr 15 mínútum í 30 á leið 15 milli annatíma og á leið 19 á annatíma. Akstri um helgar verður hætt á leið 36 og á laugardögum á leið 17. Ein morgunferð kl. 6:33 verður felld niður frá Tungubökkum á leið 7.Einnig verða gerðar sérstakar breytingar á þjónustu á ákveðnum tímabilum, svo sem um jól og sumar. Milli 21. desember og 5. janúar aka leiðir 3,5 og 12 á 15 mínútna fresti á annatíma í stað 10 mínútna. Leiðir 21, 24 o