Innkalla þristakökur vegna mögulegs aðskotahlutar

Myllan hefur innkallað jólasmákökudeig fyrir þristakökur vegna mögulegs aðskotahlutar. Innköllunin nær til allra lotna framleiðslu vörunnar. Í tilkynningu frá Myllunni segir að málmloka sem notuð er til þess að loka deiginu hafi fundist í deigrúllu.„Neytendum er bent á að neyta ekki Evu Laufeyjar Jólasmákökudeigs, þristakökur heldur farga þeim eða skila í verslanir þar sem það var keypt eða til Myllunnar Blikastaðavegi 2,“ segir í tilkynningunni.Þá segir að Myllan hafi ákveðið að innkalla vöruna með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.Myllan
Innkalla þristakökur vegna mögulegs aðskotahlutar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar