Í næstu viku rennur út útboðsfrestur á einu stærsta verkefni sem ríkið hefur ráðist í á þessu sviði. Það heitir Stafræn heilsa og miðar að því að innleiða stafrænar lausnir í heilbrigðisgeiranum og ná fram hagræðingu.Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu, segir markmiðið að auka þjónustu við sjúklinga og gera gögn aðgengilegri bæði sjúklingum og heilbrigðisstarfsfólki. Þá eigi Stafræn heilsa að koma í veg fyrir að sjúklingar þurfi að margsegja sögu sína og að heilbrigðisstarfsfólk setji inn sömu gögnin oft.Stafræn þróun heilbrigðiskerfisins hafi verið dreifð á margar stofnanir, sem hafi leitt til tvíverknaðar, hærri kostnaðar og kerfin deili ekki alltaf upplýsingum sín á milli.Sigurður segir að gervigreind muni koma að miklu gagni við verkefnið.„Öryggi sjúklinga og sjúkrask