Þjóðarmorðsdómur gæti sett fordæmi fyrir mál gegn Ísrael

Dómur Alþjóðadómstólsins um þjóðarmorð í Mjanmar getur haft áhrif á mál gegn Ísrael út af stríðinu á Gaza. Þetta segir Þórdís Ingadóttir prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Minni krafa sé gerð um að sanna þurfi ásetning fyrir þjóðarmorði.Í dómi Alþjóðadómstólsins segir að öryggissveitir Mjanmar hafi drepið þúsundir Róhingja, beitt fjölda kvenna kynferðislegu ofbeldi og að börn hafi orðið fyrir grófu ofbeldi. Þetta er í fyrsta sinn sem ríki er dæmt sekt um hópmorð, sem í daglegu tali kallast þjóðarmorð. Stjórnvöld í Mjanmar segja aðgerðirnar hafa beinst gegn uppreisn.„Þetta er náttúrulega mjög stór áfangi sögulega fyrir þessa þjóð, fyrir alþjóðlög og fyrir þennan dómstól,“ segir Þórdís. Hún nefnir til samanburðar að í dómi vegna stríðsins í Júgóslavíu hafi ekki talist sannað að
Þjóðarmorðsdómur gæti sett fordæmi fyrir mál gegn Ísrael

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar