Spennu var hleypt á Suðurnesjalínu tvö í dag, rúmum tveimur áratugum eftir að undirbúningur að henni hófst. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar áfanganum og forstjóri Landsnets segir þetta auka raforkuöryggi. LANGUR AÐDRAGANDI AÐ SUÐURNESJALÍNU 2 Suðurnesjalína 2 er 30 kílómetra löng 220 kílóvolta lína sem bætir annarri flutningsleið raforku við milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Með henni eykst afhendingaröryggi og flutningsgeta til og frá svæðinu, sem styður bæði við raforkunotkun á Suðurnesjum og flutning raforku frá virkjunum á Reykjanesi.Það hefur tekið langan tíma að gera Suðurnesjalínu 2 að veruleika. Undirbúningur hófst 2005 en landeigendur hafa átt í löngum deilum við Landsnet vegna framkvæmdanna sem hófust 2016.Þær voru stöðvaðar eftir dóm Hæstaréttar ári síðar þar sem he