Glíma 1984 við tölvuárás eins og að berjast við björn

Tölvuárásir, eins og sú sem gerð var á vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf., verða algengari á næstu misserum eftir því sem geta gervigreindarlíkana verður meiri. Þetta segir framkvæmdastjóri 1984. Hann líkir glímu starfsmanna við árásina við baráttu við björn. FÁGUÐ OG ÞRÓTTMIKIL ÁRÁS Fyrirtækið 1984 ehf. hýsir stóran hluta íslenskra vefja og er eitt það stærsta á sínu sviði hér á landi. Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir árásina hafa byrjað í síðustu viku og farið vaxandi síðan þá. Hún var fáguð og dýr.„Þetta var gífurlega fáguð og þróttmikil árás. Til þess að gera svona árásir í dag þarftu verulegt fjármagn. Það er metið svo, af þeim sem vit hafa á, að þetta hafi kostað tugi milljóna í gervigreindargjöld. Hún er alveg risa, risa, risa stór og dýr.“Árásin hafði áhrif
Glíma 1984 við tölvuárás eins og að berjast við björn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar