Út fyrir endimörk sólkerfisins

Þau tímamót urðu að morgni miðvikudagsins 18. nóvember að geimkönnunarfarið Voyager 1, sem skotið var á loft haustið 1977, var komið í 25 milljarða, 902 milljónir 68 þúsund 356 kílómetra fjarlægð frá Jörðu - eða eins ljósdags fjarlægð. Voyager er kominn út fyrir sólkerfið og heldur áfram að fjarlægjast okkur á ógnarhraða - nánar tiltekið um 61.200 kílómetra á klukkustund.Stjarneðlisfræðingar víða um heim fögnuðu áfanganum ógurlega, eins og Gunnlaugur Björnsson, fyrrverandi rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands getur staðfest.Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann í Speglinum á fimmtudag og á föstudag og hlusta má á lengri útgáfu af samtali þeirra Gunnlaugs, þar sem þeir fara út um heima og geima, í spilaranum hér að neðan.
Út fyrir endimörk sólkerfisins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar