Nær að byrja á göngum en að setja marga milljarða í veginn yfir Fjarðarheiði

Bæjaryfirvöld í Múlaþingi þrýsta á Vegagerðina að ráðast í endurbætur á Fjarðarheiði og heimastjórnin á Seyðisfirði krafðist þess í bókun á síðasta fundi sínum að sett yrði sérstök fjárveiting í styrkingu og endurbætur vegarins.Þetta er hæsti fjallvegur landsins og sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu. Í ríflega mánaðargömlu minnisblaði Vegagerðarinnar kemur fram að undanfarin ár hafi ekki verið lögð mikil vinna í skoðun og greiningu á endurbótum á Fjarðarheiði þar sem fyrir hafi legið að jarðgöng myndu leysa veginn af hólmi innan tíðar. „ÞAÐ VORU ALLIR AÐ BÍÐA EFTIR AÐ ÞAÐ YRÐI BYRJAÐ Á GÖNGUM“ „Það var skilningur á því að það yrði ekki farið í framkvæmdir þarna af því að það voru allir að bíða eftir að það yrði byrjað á göngum,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi
Nær að byrja á göngum en að setja marga milljarða í veginn yfir Fjarðarheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar