Landsréttur hefur staðfest ákvörðun um að framselja karlmann til Króatíu vegna evrópskrar handtökutilskipunar. Króatar vildu fá manninn afhentan svo hann gæti afplánað dóm fyrir að selja verulegt magn vopna milli landa. Hann afplánar nú dóm hér á landi fyrir fíkniefnalagabrot.