Frönsk lögregluyfirvöld hafa til rannsóknar nauðgunar- og ofbeldisbrotakæru leikkonu á hendur þeim Gerard Depardieu og Michel Houellebecq. Hún segir tvímenningana hafa brotið á sér árið 2018 meðan á tökum kvikmyndarinnar Thalahasso stóð, þar sem þeir leika einhvers konar ýkta útgáfu af sjálfum sér.AFP hefur eftir tveimur heimildarmönnum að leikstjórinn Guillaume Niclaux hafi verið kærður fyrir óbeina þátttöku í athæfinu.Konan greinir franska Mediapart frá því hvernig Depardieu beitti fingri á kynfæri hennar við tökur á einu atriði meðan Houellebecq hélt henni fastri. Einnig hafi leikarinn beitt hana þvinguðum munnmökum meðan tökuvélarnar rúlluðu. AFP leitaði árangurslaust viðbragða allra sem málinu tengjast.Depardieu var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum og dró áfrýjun í því má