Slökkt á flugöryggisljósum á byggingarkrana við Skúlagötu um tíma

Slökkt var á flugöryggisljósum á byggingarkrana við hótelturn Radisson Red við Skúlagötu um tíma eftir að framkvæmdum þar var hætt. Ekki liggur fyrir hve lengi var slökkt á þeim.Eva Bryndís Helgadóttir, skiptastjóri í þrotabúum sex félaga sem tengjast turninum, segir ljósin virka núna. Slökkt hafi verið á þeim í örstutta stund en aðspurð gat hún ekki tilgreint tímaramma. Hún segir að ekki hafi verið slökkt á ljósunum heldur hafi þeim slegið út. Blessunarlega hafi ekki orðið afleiðingar af því.Einn þeirra sem sendu ábendingu til Isavia segir að slökkt hafi verið á ljósunum frá 2. nóvember. ISAVIA Á EFTIR AÐ RÝNA ATBURÐARÁSINA Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir stofnuninni hafa borist ábending þann 17. nóvember. Hann viti ekki hve lengi hafi verið slökkt á ljósunum og Isavia
Slökkt á flugöryggisljósum á byggingarkrana við Skúlagötu um tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar