Stjórn Klappa hf. samþykkti á stjórnarfundi í dag að leggja til við hluthafa félagsins að samþykkja afskráningu hlutabréfa félagsins úr viðskiptum á Nasdaq First North Growth Market Iceland. Félagið er annað félagið í vikunni til þess að tilkynna áform um afskráningu af vaxtarmarkaðnum First North. Það gerði Solid Clouds einnig á mánudag. Þannig hverfa tvö af fimm félögum markaðins af honum.