Hlutabréf tæknifyrirtækja féllu hratt í dag og drógu hlutabréfamarkaði víða um heim niður. Sterk innkoma gervigreindarfyrirtækisins Anthropic á hlutabréfamarkað dugði ekki til að slá á vaxandi áhyggjur af gríðarlegum fjárfestingum í greininni og háu verðmati fyrirtækja. Hlutabréf í Anthropic hækkuðu um hríð úr útboðsgenginu 83 dollurum, eða um 10.400 krónum, í yfir 110 dollara, eða rúmlega 13.700 krónur, eftir góða...