Flennistór fáni trans fólks var hengdur fram af svölum á 14. hæð Landspítalans í Fossvogi síðdegis í dag. Öryggisverðir komu auga á fánann og drifu sig upp á 14. hæð og tóku hann niður, án þess að hugsa nokkuð um það um hvers kyns fána var að ræða. Í dag er alþjóðlegur minningar dagur trans fólks sem látist hefur vegna hatursglæpa og ofbeldis.