Tveir Danir grunaðir um að hafa ætlað að myrða úkraínskan rappara

Danska lögreglan er með tvo menn í haldi sem grunaðir eru um að hafa ætlað að myrða úkraínska rapparann Kyivstoner. DR, danska ríkisútvarpið, greinir frá þessu. Einnig er grunur um að leyniþjónustustofnun í Rússlandi hafi fengið mennina til voðaverksins sem tókst að koma í veg fyrir.Kyivstoner hugðist halda tónleika í Charlottenlund í úthverfi Kaupmannahafnar 25. september. Danirnir tveir voru handteknir stuttu fyrir tónleikana og neita sök.Ríkislögreglustjóri Danmerkur, Lasse Boje, sagði á blaðamannafundi rétt í þessu að það væri ný staða fyrir lögregluna að dönsk glæpagengi taki að sér að fremja glæpi fyrir erlend ríki. Glæpahópar sem geri slíkt séu sérlega hættulegir. Þegar fólk samþykki að fremja ódæðisverk fyrir leyniþjónustur erlendra ríkja hafi það farið langt yfir strikið.
Tveir Danir grunaðir um að hafa ætlað að myrða úkraínskan rappara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar