Stórum trans fána flaggað af efstu hæð Landspítala

Stór trans fáni var hengdur fram af svölum á 14. hæð Landspítalans í Fossvogi síðdegis. Gjörningurinn var ekki á vegum spítalans.Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum fjarlægðu öryggisverðir spítalans fánann þegar þeir urðu hans varir. Forsvarsfólki spítalans var ekki kunnugt um hver stóð að atvikinu.Í dag er alþjóðlegur minningardagur trans fólks. Háskóli Íslands er meðal stofnana sem flagga trans fánanum í tilefni dagsins.
Stórum trans fána flaggað af efstu hæð Landspítala

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar