Tómas Hrafn Sveinsson lögmaður hefur verið metinn hæfastur umsækjenda um tvö laus embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þóra Hallgrímsdóttir lögmaður var metin næsthæfust. Tómas Hrafn er gjarnan kallaður Talninga-Tómas vegna starfa sinna í yfirkjörstjórn Reykjavíkur. Hann hefur jafnframt reynslu af dómarastörfum, en hann gegnir starfi varadómara við Endurupptökudóm. Samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins auglýsti dómsmálaráðuneytið embættin tvö laus til umsóknar...