Tómas Hrafn metinn hæfastur til dómarastarfa

Hús Héraðsdóms Reykjavíkur.RÚV / Ragnar VisageTómas Hrafn Sveinsson, formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur, hefur verið metinn hæfastur umsækjenda til að gegna dómaraembætti við Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómsmálaráðherra auglýsti tvö embætti við dómstólinn. Þóra Hallgrímsdóttir, settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, kemur næst Tómasi að mati dómnefndar um hæfni umsækjenda sem hefur skilað dómsmálaráðherra umsögn. Sex sóttu um.
Tómas Hrafn metinn hæfastur til dómarastarfa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar