Rússlandsher drap átta manns, hið minnsta, í árásum á Úkraínu í nótt. Úkraínuforseti segir þetta einar mestu árásir Rússa síðan þeir hófu innrásarstríðið. Eitt flugskeyti Rússa fannst í Póllandi.Rússlandsher skaut 110 flugskeytum á Úkraínu í nótt og drap sex manns í höfuðborginni Kyiv og tvo í borginni Lviv í vesturhluta Úkraínu, langt frá víglínunni. Pútín Rússlandsforseti hafði hótað Úkraínumönnum sársaukafullum viðbrögðum við árásum þeirra á Kerch-brúna í vikunni sem tengir Krímskaga við meginland Rússlands.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sagði að árásirnar í nótt hafi verið einar þær mestu síðan Rússar hófu allsherjarinnrás 2022. Víða varð rafmagnslaust því flugskeytin hæfðu orkumannvirki. Þá réðust Rússar á þrjár brýr í Kyiv. Margir borgarbúar leituðu skjóls í jarðlestarstöðvum. Fó