Framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur segir að engir 10-15 metra plastbátar sem smíðaðir hafi verið hér á landi eftir árið 2000 ættu að vera með haffærisskírteini. Hann hafi sent tilkynningar til Samgöngustofu án þess að brugðist hafi verið við athugasemdum.