Flóðhesturinn Fíóna öll eftir að hafa étið hatt

Fólk með blóm hefur drifið að dýragarðinum í Cincinnati í Bandaríkjunum síðan í gær eftir að tilkynnt var að flóðhesturinn Fíóna væri dauð. Einn gestur dýragarðsins missti hatt sinn inn á afgirt svæði flóðhestsins í síðustu viku og hún át hann.Ekki þótti ráðlegt að skera dýrið upp til að sækja hattinn. Stjórnendur dýragarðsins segja að allt hafi verið gert til að reyna að bjarga lífi hennar.Fíóna fæddist 2017 og hefði orðið tíu ára í janúar. Töluverð umfjöllun var um Fíónu þegar hún fæddist. Það var fyrir tímann og fjölmiðlar fylgdust náið með því þegar hún barðist fyrir lífi sínu.
Flóðhesturinn Fíóna öll eftir að hafa étið hatt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar