Stjórn Fjölmiðlanefndar hefur ráðið Veru Sveinbjörnsdóttur í starf framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Hún tekur við starfinu á næstu vikum. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Vera hefur frá árinu 2022 gegnt starfi framkvæmdastjóra Myndstefs – Myndhöfundasamtaka Íslands. Áður starfaði hún sem lögfræðingur og teymisstjóri í Stjórnarráði Íslands. Elfa Ýr Gylfadóttir lét af störfum sem framkvæmdastjóri þegar skipunartíma hennar lauk í haust.