Tveir stjórnendur á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 voru látnir fara í morgun vegna framleiðslu þáttanna Allir elska Rasmus. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjónvarpsstöðinni. Það eru dagskrárstjórarnir Ulla Pors og Dorthe Thirstrup.Um fátt annað hefur verið meira rætt í Danmörku síðustu vikur en þættina. Í þeim er ungum leikara, Rasmus Wallbridge, talin trú um að hann og besti vinur hans séu að fara að búa til kvikmynd sem þeir hafa lengi látið sig dreyma um að gera. Það sem Wallbridge veit ekki er að það er ekki verið að gera kvikmynd heldur þætti um hann að halda að hann sé að gera kvikmynd. Allir þeir 149 sem komu að gerð þáttanna vissu að verið væri að blekkja hann.Tveir stjórnenda dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 voru látnir fara í dag. Innan stöðvarinnar stendur yfir rannsókn