Viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hófust á aðalmarkaði Kauphallarinnar í morgun. Hlutabréf félagsins hafa fallið um tíu krónur frá því markaðurinn opnaði.Grímur Sæmundsen stofnandi og stjórnarformaður félagsins, segir að gengi félagsins geti og muni sveiflast upp og niður af ýmsum ástæðum. Það skipti félagið mestu máli að hluthafar fái ávöxtun til lengri tíma.Einstaklingar keyptu um 40 prósent hlutafjárins í A-hluta.Upphaflega var ætlunin að selja 30% hluta til einstaklinga en 70% til fjárfesta.Grímur segir að áhugi almennings á að fjárfesta í A-hlutanum hafa verið í takti við áherslur félagsins.Viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hófust á aðalmarkaði Kauphallarinnar í morgun. Stór stund, segir stofnandi félagsins. Áhugi erlendra fjárfesta á hlutafjárútboði félagsins var minni en hann