Pétur Georg Markan bæjarstjóri Grindavíkur segir það einlægan vilja bæjarstjórnar að nálgast sprunguviðgerð af nærgætni og fagmennsku þannig að aðstæður til leitar geti skapast. Bæjaryfirvöld hafi átt fundi með fjölskyldu Lúðvíks og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.„Við leggjum upp í þessa framkvæmd þannig að við viljum hámarka möguleikana á því að þetta geti orðið leitarstaður aftur. Og svo er það lögreglustjórans að taka yfir vettvanginn ef þær aðstæður skapast.“Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi í fyrradag að stuðla að því að hægt verði að endurheimta lík Lúðvíks. Hann týndist við sprunguviðgerðir í Grindavík í janúar 2024 og er talið að hann hafi fallið í sprunguna og látist.Leitað var í einn dag í síðasta mánuði án árangurs og leit síðan hætt. Fjölskylda Lúðvíks lýsti miklum vonbri