Tveir danskir menn hafa verið ákærðir fyrir ráðabrugg um að myrða úkraínskan rappara í Danmörku, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Til stóð að umræddur rappari, sem kallar sig Kyivstoner, héldi tónleika í Danmörku þann 25. september en mennirnir voru handteknir skömmu fyrir tónleikana og var hætt við þá.