Mikill samdráttur í framlegð eldsneytissölu, sem hefur lækkað um tæplega 900 milljónir milli ára, vegur þungt í rekstri Festar og hefur orðið til þess að hlutabréfagreinandi lækkar afkomuspá sína fyrir félagið. Verðmat Festar lækkar samt aðeins lítillega, meðal annars vegna jákvæðra áhrifa nýlegra fyrirtækjakaupa.