Framkvæmdastjóri 1984 ehf. segir tölvuárás á fyrirtækið mjög alvarlega og augljóst að fjársterkir aðilar standi að baki henni. Fyrirtækið, sem hýsir stóran hluta íslenskra vefsíðna, hefur lokað fyrir alla þjónustu til að tryggja öryggi viðskiptavina.„Við byrjum á algerri lokun en hún verður stutt. Svo fer póstþjónusta og DNS-þjónusta aftur í samt lag mjög fljótlega og smám saman mjökum við inn þjónustunni þegar við erum orðnir vissir um að öll gögn séu örugg og öryggi okkar viðskiptavina tryggt. En þetta mun hafa mikil áhrif. Þetta er mjög alvarlegt atvik,“ segir Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984.Tölvuárásin hefur áhrif á tugi þúsunda viðskiptavina því Mörður segir fyrirtækið sennilega langstærsta vistunaraðila vefsíða og tölvupósts á Íslandi. Árásin var gerð á framlínuþjónustu fyr