Karl Eðvaldsson, deildarstjóri reksturs og þróunar á skrifstofu borgarlandsins, segir óvænt frost í morgun hafa haft áhrif á vetrarþjónustu á stígum í borgarlandinu. Hann segir vélar hafa verið komnar út um klukkan fjögur í efri byggðum en um klukkan sjö annars staðar.