Síðasti dagur COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi, samkvæmt dagskrá er í dag. Drög að samkomulagi voru birt í gær og eru skiptar skoðanir um þau meðal fulltrúa ríkja heims. Í drögunum er ekki minnst á jarðefnaeldsneyti. Á síðustu ráðstefnum hafa umræður um minnkun á notkun þess verið fyrirferðamiklar. Talið er að lokasprettur ráðstefnunnar dragist á langinn.COP31 hefur staðið í borginni Antalya síðan 9. nóvember. Þar eru fulltrúar 200 ríkja. „Á þessum tímapunkti er enginn ánægður,“ sagði ráðherra loftslagsmála í Brasilíu, Aloisio Lopes Pereira de Melo, við fjölmiðla í morgun.Í frumdrögum samkomulags sem voru birt í byrjun vikunnar voru hvatningarorð um að flýta aðgerðum til að hætta notkun jarðefnaeldsneytis, ásamt öðrum málum tengdum efnahag og loftslagsrannsóknum. Í