Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur gert samkomulag við Bjarkarhlíð um 39,4 milljóna króna styrk til starfseminnar árið 2027. Bjarkarhlíð veitir þolendum ofbeldis, 18 ára og eldri, ráðgjöf og stuðning þeim að kostnaðarlausu. Þar er meðal annars boðið upp á lögfræðiráðgjöf, ráðgjöf lögreglu og stuðningshópa. Þá fá þolendur aðstoð við að leita til félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og annarra stuðningsúrræða. Bjarkarhlíð...