Hlutabréfin féllu um tíu krónur eftir útboð

Hlutabréf í Bláa lóninu seldust á 85 krónur við upphaf viðskipta í kauphöllinni í dag. Það er tíu krónum undir 95 króna verðinu sem fékkst fyrir bréfin í hlutabréfaútboði í síðustu viku.Markaðsverðið var því 10,5 prósentum lægra en útboðsverðið. Síðan þá hefur verðið þokast upp á við og var 84,64 krónur á hvert hlutabréf í síðustu viðskiptum. Það er samt 9,0 prósentum undir útboðsverði.Hlutabréf í Bláa lóninu hafa gengið kaupum og sölum fyrir 118 milljónir það sem af er morgni.150 milljón hlutir voru boðnir út á þriðjudag í síðustu viku og lauk útboðinu á föstudag. Markmiðið var að sækja 14 milljarða króna með útboðinu. Allir hlutirnir seldust.Einstaklingar keyptu um 40 prósent hlutafjárins og fagfjárfestar restina. Einstaklingar keyptu fyrir 6,9 milljarða. Alls söfnuðust 15,3 milljarðar k
Hlutabréfin féllu um tíu krónur eftir útboð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar