Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum ASÍ og FÍB.„Allar tölur sýna okkur að álagningin er bara í hæstu hæðum um þessar mundir og þessi félög skulda neytendum verulega lækkun,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.Samkvæmt greiningu FÍB hefur meðalverð bensínlítrans hækkað um 27 krónur frá 1. september þegar tímabundinni lækkun virðisaukaskatts lauk. Meðalverð á dísillítra hefur hækkað um 51 krónu.Runólfur að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi val um ódýrara eldsneyti því Costco sé á allt annarri vegferð en hin olíufélögin.„Costco kaupir af einu olíufélaganna eldsneyti og um þessar mundir er bensínlítrinn hjá Costco 14 krónum ódýrari heldur en þar sem hann er ódýrastur hjá Orkunni, sem auglýsti sig löngum allt