Meirihluti barna á Íslandi var skráður í formlegt íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands á árinu 2025. Töluverður munur er á skráningarhlutfalli barna eftir tekjum foreldra. Rúmlega helmingur barna foreldra með lægstu tekjurnar er í formlegu íþróttastarfi en rúmlega þrjú af hverjum fjórum börnum tekjuhæstu fjölskyldanna.