Einbýlishús við Dalsbyggð 15 í Garðabæ er komið á sölu með 219,5 milljóna króna ásettu verði. Húsið var reist árið 1978 eftir teikningum Kjartans Sveinssonar og stendur á stórri, gróinni lóð miðsvæðis í bænum. Eignin er 242,2 fermetrar samkvæmt sölulýsingu, þar af er bílskúrinn um 50 fermetrar. Húsið er á þremur pöllum og hefur verið mikið endurnýjað, meðal annars eldhús...