Stórfelldar árásir Rússa eftir hótanir Pútíns

Í það minnsta fimm voru drepnir í árásum Rússa á Úkraínu í nótt, þrír í höfuðborginni Kyiv og tveir í Lvov. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hótaði árásunum í gær og sagði þær svar við árásum Úkraínumanna á Kerch-brúna sem tengir Krímskaga og Rússland. Brúin er lokuð eftir að Úkraínumenn stórskemmdu hana. Eldflaugum og drónum rigndi yfir skotmörk í Úkraínu nokkrum klukkustundum eftir yfirlýsingu Pútíns. Brýr sem eru mikilvægar í samgöngukerfi Úkraínu og orkuinnviðir skemmdust í árásunum.Pútín sagði að árásirnar yrðu sársaukafullar fyrir Úkraínu, mun sársaukafyllri en árásir Úkraínu á Kerch-brúna. Embættismenn í Karkív greindu frá því að sjúkrahús í borginni hefði orðið fyrir árás.Rússar sögðust hafa skotið niður 310 úkraínska dróna.
Stórfelldar árásir Rússa eftir hótanir Pútíns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar