Norwegian biður 5.000 viðskiptavini að loka greiðslukortum eftir gagnaleka

Flugvél Norwegian flugfélagsins.EPA / VALDA KALNINANorska flugfélagið Norwegian hefur beðið 5.000 viðskiptavini sína að loka greiðslukortum sínum eftir gagnaleka. Norska ríkisútvarpið greinir frá.Kóði var settur á vefsíðu flugfélagsins sem varð til þess að kortaupplýsingar gætu hafa verið sýnilegar um tíma á mánudaginn. Upp komst um gagnalekann á miðvikudag og atvikið hefur verið tilkynnt til norsku persónuverndarstofnunarinnar.Í síðustu viku var greint frá því að upplýsingar um 144.000 flugfarþega Norwegian og Widerøe hefðu lekið í öðrum gagnaleka eftir öryggisbrest hjá spænsku þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni.
Norwegian biður 5.000 viðskiptavini að loka greiðslukortum eftir gagnaleka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar