Nærri helmingur kvenna í Afríku getur ekki neitað kynlífi í hjónabandi

Ein af hverjum fjórum konum í heiminum hefur ekki kost á því að neita mökum sínum um samþykki, krefjist þeir kynlífs. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. The Guardian greinir frá.Verst er ástandið í Vestur- og Mið-Afríku þar sem nærri helmingur (45%) kvenna getur ekki neitað eiginmönnum sínum um kynlíf. Um þriðjungur kvenna í Austur- og Suður-Afríku og í Arabaríkjum er í sömu stöðu. Í Suður-Ameríku og á eyjum Karíbahafs er hlutfallið 10%.Þá eru yngri konur, 15 til 19 ára, í verri stöðu en eldri konur, 45 til 49 ára. Niðurstöðurnar eru í samræmi við rannsóknir sem sýnt hafa að unglingsstúlkur þurfi að þola mikið ofbeldi í nánum samböndum.Jean-Paul Murunga, lögfræðingur hjá mannréttindasamtökunum Equality Now, segir þessar tölur afar sorglegar, ekki síst í ljósi þess að Afrí
Nærri helmingur kvenna í Afríku getur ekki neitað kynlífi í hjónabandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar