Verð hlutabréfa í gervigreindarfyrirtækinu Anthropic endaði 17% hærra en þau voru metin á fyrir opnun markaða. Anthropic var sett á markað í dag og er þar með fyrst stóru gervigreindarfyrirtækjanna til þess.Verð við lokun markaða var 97 dollarar á hlut en Anthropic hafði sjálft metið virði hvers hlutar á 83 dollara, sem nú þegar var yfir spám. Fjárfestar hafa því ekki látið áhyggjur af njósnaskandal Nvidia eða ótta við bólu í gervigreindartækni stöðva sig.Heildarvirði hlutabréfanna var í lok dags 1.500 milljarðar dollara sem samsvarar um 190 þúsund milljörðum króna.Verðið var hæst strax við opnun markaða, 111,5 dollarar á hlut. Heildarvirði fyrirtækisins var því stutta stund metið á um 2.000 milljarða dollara, andvirði 250 þúsund milljarða króna. 23 MILLJARÐAR DOLLARA TIL HVERS STOFNANDA