Sex nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð hafa verið ákærðir fyrir ofbeldisbrot gegn yngri samnemendum. Voru nemendur lamdir og látnir afklæðast en að sögn saksóknara var belti og skóhorni meðal annars beitt við barsmíðarnar. Svo virðist sem ofbeldi hafi viðgengist og verið hluti af nemendamenningu skólans um árabil.