Berglind Arnardóttir missti fjögurra ára son sinn af slysförum í apríl árið 2021. Þá var eldri sonur hennar sex ára gamall. Í kjölfarið þurfti hún ekki aðeins að takast á við eigin sorg heldur einnig að styðja son sinn í gegnum missinn og vera til staðar fyrir hann í sorginni.