Í bréfi borgarstjóra kemur fram að á árunum 2022–2025 jókst rekstrarkostnaður Orkuveitunnar um 62%, ársverkum fjölgaði um 100 og laun og launatengd gjöld hækkuðu um næstum 40%. Ef þessir kostnaðarliðir hefðu þróast í takti við launavísitölu og vísitölu neysluverðs hefði rekstrarkostnaður í fyrra verið um 4,4 milljörðum króna lægri en raunin varð. Borgarstjóri benti á að ef þessi munur yrði óbreyttur næstu fimm árin – það er að segja ef ekkert breyttist – næmi hann samtals um 22 milljörðum.Borgarstjóri bendir síðan á að hrein lántaka vegna framkvæmda Orkuveitunnar á næstu árum – sem alls kosta næstum 220 milljarða og eru einhverjar þær mestu í sögu fyrirtækisins – sé áætluð um 50 milljarðar króna.Hún skorar síðan á Ara Edwald, stjórnarformann Orkuveitunnar, í samstarfi við forstjóra, að hef