Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Ion Panaghiu, sem Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í janúar fyrir nauðgun á gistiheimili í Kópavogi. Hann var nú sakfelldur fyrir þrjú brot í stað eins, og refsingin hækkaði úr tveimur árum og sex mánuðum í tvö ár og níu mánuði.